Kanturinn
Horfa á Ástarfleyið
30.01.2007 11:31:40 / Hallim

Sorglega Tapsár gaur

Jæja Þreyttur þriðjudagur ;) Róleg helgi að baka. Ég gerði nú ekki mikið af mér um helgina en ætlaði mér að fara á djammið á laugardag en ég var bara ekki í skapi til að gera neitt. Ég fór með stelpurnar að keppa á laugardaginn og þær töpuðu 4-1 í skrautlegum leik. ÞAð skemmdi alveg djammfílingin í mér hehe... Já ég er svakalega tapsár. En fór samt einn hring í bæinn en það var frekar rólegt yfir bænum þannig að ég var fljótur að skella mér heim. Sunnudagurinn þá fór ég með hinn helminginn af stelpunum að keppa á móti 2.flokki Val og þær töpuðu líka 3-0 en það var miklu beetri leikur en vantaði 10 leikmenn leikmenn. En þetta er allt að koma til leikur á miðvikudaginn á móti Keflavík og við ætlum að vinna það helvíti hehe....

Allir að mæta í reykjarneshöllina á miðvikudaginn klukkan 19:00

Halli pa kanten


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 18:10:47 / Hallim

Hvað eru allir að flýta séer ég er að dragast aftur úr hehehehe ;)

Já það er allt komið af stað hjá mér í vinnuni og ég er að komast almennilega inn í starfið og læra nöfninn hehehe. Það er voða lítið annað að frétta af mér því að eina sem að ég er búinn að vera gera er bara þjálfa og hella mér alveg í starfið.

 

 



Ég er nú líka sjálfur farinn að æfa á fullu og spiluðum við fyrsta leikinn okkar á Manúdaginn á mót keflavík og töpuðum reyndar 2-0. Við vörðums ágætlega í leiknum en vorum ekkert að gera neitt fram á við. Við vorum með vængbrotið lið og var þetta fyrsta skiptið sem að flestir í liðinu snertu bolta síðan í haust. Reynir hefur fengið til sín góðan liðstyrk úr garðinum Þegar að Einar Dan kom yfir til okkar og vonandi eru fleiri sem fylgja í kjölfarið.

 

 



Jóhanna Frænka var að eignast litla stúlku og vill ég óska þeim innilega til lukku með það. Hvað er að verða um mig bekkjarsysturmínar allar komnar með 2-3 börn er eitthvað að hjá mér eða eru þær eitthvað að flýta sér hehehehe…….. það verður bara að koma í ljós  ;)

 

 



 En fleira var það ekki í bili en þangar til næst

 

 



Halli á kantinum (hehe ég hef ekki heyrt þetta í langan tíma nú er það bara Halli Magg. L hitt er miklu persónulegra.


» 11 hafa sagt sína skoðun

10.11.2006 00:10:45 / Hallim

Mikið um að vera

Hvernig er það ætli það sé til meiri sauður en ég ? Ég sit heima hjá Helenu systir og er að blogga því að ég týndi símanum mínum og lyklunum af húsinu mínu. Ég hlít að hafa gleymt lyklunum og símanum í Garðinum þar sem ég var að að þjálfa.

 

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem að ég gleymi einhverju og það geta eflaust margir staðfest það. Það eru ófá skiptinn sem ég er sendur að kaupa eitthvað og kem með allt annað til baka en ég átti að kaupa en það fyndna við þetta allt er að ef ég er beðinn um að gera eitthvað þá kemur alltaf “já ekkert mál” og svo gleymi ég því. En nú er ég tekinn við frekar ábyrgðarmiklu starfi og held að ég verði að fjárfesta í dagbók. En þýðir það eitthvað ? hvað haldiði að það sé langt þangað til að ég gleymi henni heheheh.

                                   

 

Ég fór á framboðsfund hjá Árna Johnsen í Sandgerði og fundurinn var mjög áhugaverður. Það er margt hægt að segja um Árna en það er eitt sem verður seint tekið af honum að hann er klár og með skemmtilegar hugmyndir  og er seigur við að koma sínum málum í gegn. Ég er engin sjálfstæðismaður en ég gæti allveg hugsað mér að kjósa Árna á þing en en ég vill líka fá Hjálmar og Björgvin G.  Þetta er eitthvað sem verður að koma í ljós en mín skoðun er sú að það er engin leiðtogi í suðurkjördæminu í neinum flokkum og þess vegna var Árni Mathíesen færður yfir til að leiða lista.

                                                                            :olJkE0oa8qh90M:http://www.european-football-statistics.co.uk/logo/sum/ice/ice-vidir-gardur.gif" align="baseline" border="0">

 

Það er búið að vera geðveikt að gera hjá mér að undanförnu ég er að vinna ýmist hjá Ásbirni fyrir hádegi inní rvk eða á vitatorgi og þjálfa eftir hádegi og fram á kvöld ! Ég er að með 5.,6.,7. flokk og 2. og 3. flokk karla og svo er ég líka með Meistara og 2. flokk kvenna GRV og það er allt of mikið. En það er verið að vinna í því að fá þjálfara í þessar stöður. Þetta eru allt mjög áhugaverð verkefni en maður verður að velja og hafna í þessu lífi ef maður ætlar að tolla í svona starfi.

Þið verðið að fyrirgefa að víðirsmerkið vill ekki koma inn hjá mér ;)                                                                                   

 

Ég ætla að láta þetta nægja í bili. !!!!!

 

Halli Magg.

 

 

                                

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.10.2006 22:02:32 / Hallim

kominn aftur !! and I´m on the top of the world. ;)

Ég er loksin vaknaður eftir þjóðhátíð :lol:  Þjóðhátíðinn heppnaðist alveg ljómandi vel enda ekki við öðru að búast. Reynismenn tryggðu sér sæti í 1. deild og  í kjölfarið hætti Gunnar Oddson með liðið. Nú er verið að vinna að því að ráða nýjan þjálfara hjá Reynir og einnig er verið að vinna í því  að fá nýja leikmenn til liðs við okkur. Óli ívar hefur lagt skóna á hilluna ásamt Gogga og Gunnar Davíð og Adolf Sveinsson er farinn með Gunna í þrótt R.

Það er nú búið að vera svakalega mikið um að vera hjá mér þessa dagana ég er hættur hjá Ásbirni Ólafssyni og er orðinn yfirþjálfari hjá Reynir/Víðir. Þetta er rosalega spennandi starfo og get ég ekki beðið eftir því að setja minn svip á starfið hérna í sandgerði. Ekki það að það sé aðalmalið heldur er ég er mikið fyrir það að gagnrýna það sem betur má fara að mínu mati og nú fékk ég tækifæri til þess að standa við stóru orðinn.

Það er ýmislegt búið að vera í gangi hjá mér . Ég er fluttu í nýja íbúð og er allur að koma mér fyrir en ég hef nú ekki mikinn tíma til að vera heima þannig að þetta er hálfgert svefnpláss hehe. Ég er búinn að vera vinna í Rek. Fram að hádegi og þjálfa eftir hádegi og svo eftir það að funda um það sem koma skal í mínu starfi þannig að ég er búinn að vera frá 6 á morgnana til 11 á kvöldinn. Ég er núna kominn með Adsl heima og þá get ég farið að blogga aftur og auk þess er ég líka kominn með svegjanlegri vinnutíma sem gefur mér meiri tíma til að vinna heima að mínum markmiðum.

En endilega commentið hér . 

Það væri gaman sjá hvort að einhver skoði þessa síðu enþá eftir allan þennan tíma hehe.

Halli


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 08:33:57 / Hallim

ÞJÓÐHÁTÍÐ

Þá er komið að því ég er hér bara að leggja sýðustu hönd á niðurpakkninguna og er á leið í herjólfinn á Þjóðhátíð. Þeir sem ekki vita þá er þetta skemmtilegasta helgi sem nokkur getur upplifað. Það eru fáir búnir að auglýsa þjóðhátíðina upp eins og ég og ég var svo upptekinn af því að fá alla til að fara á þjóðhátíð að ég gleymdi að staðfesta miðan minn og rétt náði að bjarga miðanum mínum áður en að hann var seldur  ;) þá hefði ég orðið fyrst brjálaður hehehehe.....

En þetta var það eina sem að ég vildi koma á framfæri það er þjóðhátíð !!!!!!

Nei reyndar var það eitt enn  við Reynirsmenn fórum austur á Seyðisfjörð að spila við Huginn og unnum 4-1 og Dollas með 2 Momir með 1 og Darko með eitt en karlin kom inn á þegar var rúmlega 15 mín eftir í hægri bak við mikinn fögnuð áheyrenda. En þegar að ég kom inná þá komst sá orðrómur á kreik að leikmaður númer 14 hjá Reynir hefði verið í Ástarfleyinu og fékk ég að heyra það annsi oft heheheh en það skánaði þegar að það var sungið stolt siglir fleyið mitt stórsjónum á heheheheheheheh. Ég var nú óheppin að setja hann ekki í leiknum en það á eftir að koma af því ég set pott þétt eitt í sumar 100 % heheh

Lífið er yndislegt !!!!!!!!!!!!!!!


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.07.2006 21:53:50 / Hallim

lélegur Bloggari !!!!

Já ég er hræðilegur í þessu bloggi ég er ekki búinn að blogg í næstum mánuð issssssss lélegt !! Ég Búinn að vera á haus í allt sumar boltinn á fullu og svo var ég að flytja í nýtt húsnæði mömmu til mikillar hamingju heheheh svo HM djamm og fleira og fleira ...... Ég væri mað fleiri blaðsíðna pistil ef´eg ætti að segja frá öllu. Ég er búinn að vera frekar slappur í boltanum og lítið fengið að spila undanfarið en fékk þó 25 mín í gær og það var fínt og ég er allur að koma til aftur. En við erum í 3 sæti og næstum öruggir upp en við vilju vinna helvítis deildina, það er ekkert gaman að fara upp sem annað eða þriðja lið. Nú er það þjóðhátíðinn framundan og ég ætla rétt að vona að þið séuð að fara þangað annars bara meigi ykkur leiðast í friði heheheh . Það er spá hitabyljgu á þjóðhátíð þannig að ég bið ykkur sem eruð á leið á þjóðhátíð að taka aðeins með ykkur létt föt og skiljið bara pollagallana eftir heima ;) Ég veit ekkert hvað ég á að skrifa akkurat núna man ég ekkert hvað ég er búinn að vera að gera en ég kannski hendi því inn við tækifæri heheh En sjáumst á þjóðhátíð ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 21:24:14 / Hallim

Færeyskir dagar !!!!!

Þvílík helgi að baki. Við Habbi skelltumokkur á Ólafsvík um helgina á færeyska daga og djöfull var gaman. Við lögðum af stað um 11 leitið á föstudeginum og vorum ekki komnir fyr en um 2 en bílferðinn var geggjuð spennigurinn var að drepa okkur fórum þangað með ekkert með okkur ekki tjald eða svefnpoka eða neitt til að sofa í. Við ætluðum bara að redda okkur og gerðum það af sjálfsögðu. Það voru um 5 þúsund manns þarna og megnið af því var ungt fólk og það var líka bara fínt nóg um að vera. Ég varð ekkert var við þessa dagskrá því eð ég var svo upptekinn af því að spila á gítarinn að ég gleymdi að fara niður í bæ. En um 2 leitð þá skellti maður´sér niður í bæ og það var ellveg geggjað.  Laugardagurinn var líka fjörugur við vorum bara inn á hótelherberginu hjá Svenna og Gísla og horfðum á leikina og það var troð fullt á hótelinu. 

Þvílík steypa samt ég var ekki sáttur við þetta rauða spjald á Rooney og svo áttu Englendingar líka að fá víti en fengu ekki þannig að Portugal kláraði þetta bara í vítakeppni en Ricardo er líka geggjaður í vítum. En  Frakkar unnu verðskuldað brasilíu menn og Zidane var gersamlega ótrúlega góður vááá langt síðan að hann hefur verið svona góður maður hélt að hann væri útbrunninn en það er sko ekki. En Ronaldinho var svo lélegur á þessu móti að ég efast  bara um að hann sé þessi yfirburðarmaður sem allir eru að tala um verandi að spila með bestu mönnum í öllum stöðum og geta samt ekki skít issssss Plebbi ;) .


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.06.2006 21:55:40 / Hallim

Argentína verða Heimsmeistarar

Þá er komið í ljós hvaða lið leika í 8 lliða úrslitum i HM 2006. Það verða  Þjóðverjar - Argentína , England - Portugal , Úkraína - Ítalía og Brasilía - Frakkar. Ég hélt nú að Tékkar færu lengra en ég er líka ánægður með mína menn sem hafa alltaf verið Argentína síðan að ég byrjaði að fylgjast með fótbolta enda smitaður af besta fótboltamanni allra tíma Maradona. Ég spáði fyrir keppnina að Argentína og Tékkar færu alla leið og myndu spila til úrslita en það verður ekki þannig að ég vona að England fari þá alla leið og spili við Argentínu í úrlitum. Ég er ekki allveg sáttur við dómarana í þessari keppni þetta er komið út í algjört bull kannski er það þetta sem þarf til að minka brotinn en ég held það samt ekki. Það er ekkert leiðinlegra en að horfa á leik þegar að annað liðið er einum færra en hvað þá í 24 skipti fram í 16 liða úrslit hvað er að ??. Fáranlagt menn eru að fá beint rautt sem varla verðskuldar gult en svona er þetta bara en ég er sáttur við að menn eru duglegir við að spjalda fyrir leikaraskap og ef þeir sjá það ekki finnst mér að það meigi dæma spjald á þá eftir leikinn allveg eins og það er hægt að taka rauð spjöld af og setja menn í bönn eftir myndbandsupptöku. Ég þoli ekki menn sem henda sér í jörðina þá á frekar að útríma þeim og halda tæklingonum í leiknum. Svo meiga menn eins og Ronaldinho og þessar svaka stjörnur fara að gera eitthvað annað en að grenja og sýna að þeir sé þess virði að vera bestir í heimi. 

En ég gleymdi að segja ykkur að Reynir S. ann KS/leiftur á laugardaginn 4-1 og ég er hræddur um að heimir góð vinur minn úr vinnuni þurfa að fara að éta ofan í sig stóru orðinn heheheheh en næsti leikur er á móti Selfoss á fimmtudaginn og hvet ég alla sem hafa gaman af glimrandi sóknarbolta og miklum færum að koma að hvetja skemmtilegasta lið landsins hehehe. Og btw þá erum við efstir í 2.deildinni en við eigum eftir að mæta 3 af efstu liðonum í næstu 3 leikjum og það verður ekki auðvelt verkefni en ef við förum í genum þessa 3 leiki með 7 eða jafnvel 5 þá erum við í toppmálum en við ætlum okkur 9 stig og ekkert bull. Reynir er á leið í 1.deld og þaðer bara spurning hvað úrvalsdeildar lið kemur til með að spila á móti okkur á næsta ári hehehehe.


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 12:12:35 / Hallim

Búinn að eignast litla frænku !!

Ég er búinn að vera frekar latur við að skrifa en ég settist niður og fór að skrifa um það sem ég er búinnað vera að gera af mér undanfarið en að ég skildi ekkert hafa minnst á það að ég var að eignast litla frænku er nú bara óafsakanlegt með öllu.

Já þann 13.júní kl 11 mín yfir níu eignaðis Helena systir mín litla skottu sem er btw allveg pínulítil og sæt bara rétt um 12 merkur og 41 cm og Helena mín til allra lukku með það og afsakaður hvað ég er seinn að skrifa þetta inn. 

Helena og Haukur maðurinn hennar voru líka að kaupa sér einbýli hér í sandgerði og ég er búinn að vera þar meira og minna síðan að þáu fluttu þann 15 júní (góð tímastning) hún bara inn á sjúkra húsi og við að flytja fyrir hana heheheh. þetta er flott hús hjá þeim geggjað að utan en að vísu þurfa þau að mála það að utan og henda út eldhús innréttinguni en það er bara eitthvað sem gerist bara með tímanum en aftur til lúkku með húsið og skottuna ;)

Halli Frændi  !!!!


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.06.2006 11:11:37 / Hallim

stórleikur í dag !

nú er búið að vera tveggja vikna frí í boltanum og fyrsti leikurinn okkar eftir fríið er í dag á móti Ks/leiftri og það er bara skildusigur ef að við ætlum að vera í toppbaráttu í deildinni. Við vorum að fá fjóra nýja leikmenn þá Óla Berry ( eyjapeyja) og Davíð Frá kef og Darco og Einhvern ungan markvörð frá skotlandi. Nú harðnar alltaf baráttan um sæti í liðinu og ég verð þá bara að leggja harðar að mér efég ætla að vera með í þessu. Ég er einfaldlega þannig gerður að ég er ekkert hræddur við samkeppni ég verð þá bara að vinna betur en ég er samt sem áður ekki allveg að skilja af hverju menn eru að hrúga inn fleiri leikmönnum þegar að við erum eftstir og allt er að ganga upp. En jú vissulega eru menn eins og Svenni, Goggi Haddi Frikka og Kristján meiddir þannig að ég skil það að fá lánsmenn frá kef og Markmann þar sem að okkur vantaði markman til að vinna einn til tvo leiki fyrir okkur en það á eftir að koma í ljós hvort að hann sem rétti maðurinn í það eða að Oddur leggi bara harðar að sér og slær hann út skotinn er bara búinn að mæta á eina æfingu þannig að ég veit lítið um hann. En það sem að ég skil ekki það er það að vera að koma með útlendinga inn í þetta núna við erum með nógu sterk lið til að fara upp þannig að það væri skynsamlegra að spara peningana þangað til á næsta ári þegar að við þurfum á þeim að halda. Og ef að við komumst ekki upp sem að ég efast stórlega um þá eigum við bara ekkert heima í fyrstu deil að ári þannig að ég hvet stjón Reynis um að staldra aðeins við og bíða og sjá hvað gerist í næstu leikjum og ef hlutirnir eru ekki að ganga upp þá geta menn leitað lausna. Ég er ekki að segja þetta í leiðindum heldur ég vill bara ekki að mitt félag sé ekki að tæma veskið ef að þeir þurfa þess ekki. Ég veit ekki hvað þeir eru að eyða miklu á móti tekjum en ég trúi ekki öðru en að þeir sé með tekjur á móti öllum þessum kostnaði því að ef það er ekki þá gengur dæmið ekki upp og Reynir hefur ekki efni á því. en Áfram Reynir og vonandi gengur þetta allt upp !

En út í allt annað við tókum smá skrall um síðustu helgi á föstudaginn ég Habbi Micheal og Brims og skelltum okkur í bæinn sem var btw. ágætis skemmtum hittum fullt aaf skemmtilegu fólki  en ég fór heim á undan þeim heheh sorry lad´s heheheh en ég var rólegur á laugardaginn bara heima stiltur enda æfing á sunnudaginum.

kemur meira á morgun

Halli M.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 02:46:42 / Hallim

Sjómannadagurinn !

Já það var svaka stuð sjómannahelgina á Föstudagskvöldið var afmæli hjá Gumma forstjóra fyrirtækisins og þar sem að Hár þema var og það var bara snilld út í eitt allir með hárkollur og svaka stuð. Þarna fór margir á kostum í fljótu bragði má nefni Sigga en og aftur og Heimir var geggjaður og Habbi var syfjaður heheheh. Þarna var dansað fram eftir kvöldi unir stjórn Pál Óskars sem er snilldar plötusnúður ég skemmti mér alla vegna alltaf þegar að hann er að spila en eftir það ætluðum við Siggi og Habbi að kíkja í bæjinn en það var ekkert spes þannig að við habbi fórum bara í heim snemma.

Laugadagurinn var miklu betri þá kíktum við í Grindavík á ball sem var helvíti gaman alltaf gaman í grindarvík fullt af sætum stelpum og skemmtilegu fólki. það er svo skrítið að ég hitti alltaf ótrúlegast fólk þegar að ég fer í Grindarvík en það er kannski þess vegna að það er svona gaman að fara þangað og Michael má eiga það að hann er snillingur hehehe. þegar að´það var búið keyrði ég bara í kef og hélt áfram að djamma til að verða átta en nú er þetta djamm búið í bili enda erum við í topp stöðu í deildinni og þurfum að vera með allan huga okkar við það.


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 02:34:09 / Hallim

Við erum efstir !!!!

Við lékum 2 leiki í sjómannadagsvikunni á móti Huginn og ÍR við unnum Huginn örugglega 4-2 og hefðum auðveldlega geta unnið hann mað tveggjastafa tölu slíkir voru yfirbuðirnir . ég spilaði 25 mínotur sem bakvörður í þeim leik og stóð mig ekkert vel eða ég var alla vegna ekki sáttur við minn leik en það verður bara að nýta næsta séns betur sem og ég gerði á móti ÍR þar sem að við gerðum jafntefli 0-0 en við áttum hættulegri færi í leiknum en þeir voru samt meira með boltann en ég kom þá inn á hægri kantinn og stóð undir nafni og spilaði bara fínt í þessar 10-15 mín sem ég spilaði.

Við erum alla vegna efstir og það er bara mjóg gott við vorum að fá júkka til okkar Darko sem er senter og mér líst bara vel á hann, hann getur gert fína hluti fyrir okkur en hann labbar ekkert í liðið það er hörð samkepnni í það núna. Næsti leikur er laugardaginn 24 júni við KS/Leiftur hér í sandgerði og hvet ég alla til að koma og horfa á leikinn.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 02:24:09 / Hallim

Geggjuð Helgi !!!!

Fyrsta helginn í júni eða Hvítasunnuhelginn svokallaða var hreint út sagt alveg geggjuð það var bara djamm alla helgina.

Föstudaginn fór ég til eyja til þess að ganga frá íbúðinni fyrir krakkana sem voru að kaupa en um leið og ég kom úr herjólfi fór ég bara beint í gólf með Smára og Svenna sem var geggjað enda eitt af þeim hlutum sem að ég sakna mest við eyjarnar að geta farið með vinum sínum í gólf hvenar sem maður vill. þegar að við vorum búnir í gólfi þá fór ég bara á Drífanda að djamma og hitti fullt af fólki sem minnir mig líka á það hvað það er alltaf gott að koma til eyja geggjaður staður. Ég gisti hjá Eygló mömmu hans Smára sem er algjört æði og færði henni varnig frá Ásbirni Ólafsyni ( alltaf að selja og kynna vörur heheheh) svo má ekki gleyma sigurvegara kosningana henni Erlu Vído sem er æðislegasta kona í heimi. Ég kíkti á hana eins og alltaf þegar að ég kem til eyja og ég bið bara að heilsa öllum sem ég hitti ekki og kem fljótlega aftur ;).

Laugardagurinn : þegar að ég kom úr herjólfi brunaði ég beint heim og tæmdi bílinn þvi að ég átti að mæta í Pylsu partý með vinnu félögonum en fyrir þá sem vita ekki hvað pylsu partý er þá er það stráka partý engar stelpur. það var líka geggjað gaman þetta kvöld þar sem að Siggi nokkur fór á kostum og hver sem fann upp á þessum punga leik er snillingu því að þetta er búið að vera á fullu síðan. Þannig er mál með vexti að að ef einhver tekur út á sér punginn og einhver annar úr hópnum sér á honum punginn þá má viðkomandi rassskella hann. og þetta er gekk þarna allt kvöldið sem er bara snilldar leikur. Já það má vera að við seúm ruglaðir en ef þið vissuð hvað þetta er skemmtilegt váááá. jámm við kíktum á Hverfis aftir partýið og þar fékk ég að finna fyrir því að hafa verið í fleyinu því að þeir gengu á eftir mér og görguðum á allar stelpur  " Hann var í Ástarfleyinu " þannig ég var eins og fávíti en thats life ;) . og síðan má ekki gleyma honum Bjössa sem steindrapst á miðjum laugarveginum en einar og Siggu komu Bjössa til bjargar heheheheh þvílíkt stuð þetta kvöld en hver múnaði í lúguna á aktu taktu ?????????

Það var svo bara slappað af allan sunnudaginn !


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.06.2006 01:57:48 / Hallim

Úrslit kosninga !!!

Já nú er ég risinn upp frá dauðum og ég ætla frekar að skrifa nokkra stutta pistla um hvað ég er búinn að vera að ger en að gera einn langan því að það nennir engin að lesa einhverja endalaysu. Eins og flestum er kunnugt um vann D-lisinn í eyjum glæsilegan sigur í kosningonum og vill ég óska Elliði og öllum hinu góðum eyjamönnum til hamingju með það. En í sandgerði kom upp frekar skondinn staða þar sem 3 flokkar fengu 2 menn og fjórði bara einn og þar sem að meiri hlutinn hélt velli en k-listinn tapaði einum manni til D-lista. Margir eru ósáttir við þetta og segja að S-listinn hafa fengið flest atkvæði og það séu skilaboð um að fólk vilji breytingar. Gott og vel það vorum ca. 400 hundruð manns sem kusu B og S lista en ca. 500 manns sem vildu sama meirihluta hvaða skilaboð eru það ? það er kannski rétt að fólk vilji breytingar en það fólk sem vildi svona miklar breytingar getur ekki verið að það hafi veðjað á rangan hest ? þetta eru allt bara vangaveltur sem hver og einn verður bara að gera upp við sig.

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.05.2006 22:38:12 / Hallim

Pólitík !!!!!!

Já ég tala mikið um bolta enda snýst lífið mitt um bolta þessa dagana og það er voða lítið annað að gerast hjá mér því að annars væri ég að skrifa hér miklu oftar heheh. Ég er nú jú búinn að vera að fylgjast með mínu næsta áhugamáli sem er Pólitík. Ég er búinn að vera að skoða stöðunna í pólitíkinni í Sandgerði vel og vera að kynna mér flest framboðinn og hvað er búið að ske á meðan ég var í burtu og eins og flestir vita þá hef ég sterkar skoðanir á öllum málum. En það sem liggur mér mest á hjarta eru skipulagsmál .íþróttar og barna og unglinga mál.

 

Ég var að lesa yfir baráttumál flokkana og sjá svona hvað þau vilja gera hér og þar kemur mér alltaf eitt til að verða pirraðan og það er þegar að það er sagt að í bæjarstjórna kosningum á bara að kjósa fólk. Jú þetta kann að hljóma svolítið skrítið en ég spyr oft til baka þegar fólk segir þetta hvort að það sé ekki fólk á hinum listunum líka eða hvaða bull er þetta hehehheheh. Það er líka annað sem er líka svolítið skrítið þegar að ungt fólk er að bjóða sig fram á lista og ætlar að taka þátt í pólitík og halda það að þau hafi einhver áhrif. Ég hef verið að spjalla við marga unga krakka sem eru að gefa sig út fyrir að vera póilitíkusa víða bæði hér í sandgerði og í eyjum og þau virðast vera gersamlega heilaþveiginn á forustinni og hafa litla sem enga persónulega skoðun á málonum. Þegar  maður fer að spyrja þau aðeins út í hvað þau eru að segja þá kemur bara alltaf "þetta er bara svona" !!!!!! hehehehehehe

 

En það er annað við þetta auðvita er ekkert verið að ná í þetta unga fólk til neins annars heldur en að ná til vini þeira og fjölskyldur. Þetta unga fólk er rosalega duglengt við að vinna í kringum kosningar og smala saman lið á allskonar uppákomur flokkana. en að halda það að þessir krakkar fái að taka einhvern þátt í ákvörðunartöku listans þá er kominn tími til að vakna. Ég fagna því að ungt fólk vilji taka þátt í pólitík því að hún snertir okkur öll en þá verður maður að hafa áhuga á því að vilja kynna sér allar hliðar málana og læra að hlusta á alla ekki bara þá sem eru í sama flokki. Fólk þarf að geta hlustað á allar hliðar og myndað sér skoðun sem einstaklingar en ekki fyrir mömmu og pabba eða einhvers annars.

 

Vestmanneyjar : þar er mikið búið að ganga á undanfarið kjörtímabil og allt farið eins ílla og hægt er enda er meirihlutti alltaf að breita sér. Miðað  við allt sem hefur gengið á hefur aðeins einn maður í bæjarstjórn vestmanneyja verið ákveðinn og alltaf rökstudd sitt mál vel og heiðarlega sama hvort að fólk er svo sammála honum eða ekki. Það er Elliði Vignirsson oddviti Sjálfstæðismann , ég er ekki Sjálfsm. en hann fær allan minn stuðning fyrir heiðaleika og traust en menn eins og Lúðvík og Andrés og Guðrún eru búinn að haga sér eins og hrægammar allt tímabilið en nú er bara kominn tími til að kjósa traustann mann  í forustu í Eyjum og ég vill fá Elliða ekki bara í meirihluta heldur sem næsta Bæjarstjóra.

 

En hvað varðar Sandgerði þá veit ég ekki hvað verður eins og staðan er  þá er enginn kostur góður en maður þarf að hugsa lengi og vel til að sjá hvaða kostur er skárstur.


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9